Activity Stream
Activity Stream
Activity Stream

Activity Stream leitar að fjármálastjóra (CFO)

Alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækið Activity Stream leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum fjármálastjóra til starfa á starfsstöðinni okkar á Íslandi. Um er að ræða mjög fjölbreytt og krefjandi starf í alþjóðlegu rekstrarumhverfi svo viðeigandi menntun og reynsla er mikill kostur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirsýn og umsjón með gerð fjárhagsáætlana, uppgjöra og skýrslugerða
  • Umsjón með fjármögnun, sjóðstreymi og áhættustýringu
  • Eftirlit með rekstrarkostnaði og arðsemi
  • Greining og ráðgjöf fyrir stjórnendur og stjórn
  • Umsjón með endurskoðun og regluvörslu fjármála
  • Umsjón með umbótaverkefnum á sviði fjármála
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála og/eða endurskoðunar
  • Víðtæk reynsla af fjármálum, rekstri, reikningshaldi og áætlanagerð
  • Reynsla í alþjóðlegu rekstrarumhverfi
  • Hæfni og reynsla í greiningu og framsetningu tölulegra gagna
  • Rík samskiptafærni, skipulagshæfileikar og gagnrýnin hugsun
  • Reynsla af bókhaldskerfi Business Central er kostur
  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti
Um Activity Stream

Activity Stream er ört vaxandi alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki í viðburðahaldi (live entertainment). Fyrirtækið býður viðskiptavinum upp á lausnir sem snúa að markaðssetningu og markaðsgreiningu viðburða, samskiptum við áhorfendur og einnig skipulagningu/rekstri viðburða. Fyrirtækið er með starfsstöðvar í sex löndum og hjá því starfar fjölbreyttur hópur sérfæðinga í hugbúnaðarþróun, kerfisrekstri, þjónustu og sölu. 

Auglýsing birt16. júní 2025
Umsóknarfrestur30. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar