

Rekstrarstjóri mathallar - Hafnartorg
Verslunar- og veitingasvæði Hafnartorgs stækkar með opnun mathallar undir vinnuheitinu Hafnartorg Gallery. Þar verða starfræktar 8 glæsilegar veitingaeiningar sem munu nýta sameiginleg þjónusturými og setusvæði fyrir gesti. Einn stærri stakur veitingastaður verður aðliggjandi mathöllinni ásamt fjórum glæsilegum verslunum.
Saman munu öflugir rekstaraðilar og framúrskarandi hönnun skapa einstaka upplifun fyrir gesti og gangandi. Þessir rekstaraðilar bætast í góðan hóp þeirra 12 verslana, veitinga- og afþreyingastaða sem starfræktir eru á Hafnartorgi í dag. Samtals verða því rekstaraðilar á Hafnartorgi um 25 talsins eftir stækkun.
Reginn hf. óskar því núna eftir því að ráða öflugan rekstrarstjóra sem mun bera ábyrgð á sameiginlegum rekstri mathallar. Gert er ráð fyrir að rekstrarstjóri komi til með að undirbúa og móta fyrirhugaðan rekstur ásamt því að taka við daglegum rekstri mathallar eftir opnun. Rekstrarstjóri mun vera hluti af öflugu rekstrarteymi Regins sem m.a. hefur umsjón með þjónustu í Smáralind og Egilshöll.











