

Hefur þú ástríðu fyrir gestrisni og góðri þjónustu?
Um starfið
Veitinga- og verslunarstjóri ber ábyrgð á rekstri og gæðum veitingasvæða og verslana Sky Lagoon. Hlutverkið felur í sér að tryggja að allir staðir standist háar kröfur Sky Lagoon um gæði og gestrisni, með vönduðu vöruframboði og hlýlegri, persónulegri þjónustu, samhliða skilvirkum rekstri og góðri afkomu.
Um er að ræða nýtt starf sem veitir tækifæri til að móta og þróa veitinga- og verslunarstarfsemi Sky Lagoon til framtíðar.
Veitinga- og verslunarstjóri heyrir undir Gestaupplifunarstjóra og ber ábyrgð á að stefna Sky Lagoon um heildarupplifun gesta endurspeglist í samræmdri og vandaðri þjónustu á öllum starfsstöðvum tengt matarupplifun og verslun. Starfið krefst virkrar þátttöku og sýnilegrar viðveru í daglegum rekstri og sameinar teymisstjórnun, fjárhagslega ábyrgð og stöðugar umbætur með ánægju gesta að leiðarljósi.
Vinnutími er ekki eingöngu bundinn við hefðbundinn dagvinnutíma á virkum dögum. Gert er ráð fyrir sýnilegri viðveru á álagstímum og sveigjanleika þegar reksturinn kallar á stuðning stjórnanda, meðal annars við sérstaka viðburði og séropnanir. Við skipulag vinnutíma skal gæta jafnvægis og tryggja að vinnuálag sé hóflegt og í samræmi við þarfir rekstrarins.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Daglegur rekstur: Stýra daglegum rekstri allra veitingasvæða og verslana og tryggja að aðstaða og teymi séu tilbúin, þjónustan skilvirk og kröfum um hreinlæti og framsetningu fylgt.
· Upplifun gesta: Tryggja að þjónusta endurspegli þjónustuviðmið og vörumerki Sky Lagoon, bregðast skjótt við athugasemdum og nýta endurgjöf gesta til umbóta.
· Teymisstjórnun: Leiða, þjálfa og styðja vaktstjóra, teymisstjóra og starfsfólk og byggja upp jákvæða þjónustumenningu.
· Vöruúrval og framsetning: Þróa matseðla, vöruúrval og framsetningu þannig að framboðið höfði til gesta og gæðin séu stöðug.
· Birgðir: Tryggja skilvirkt birgðaeftirlit og lágmarka sóun.
· Gæðakröfur og verklag: Tryggja að farið sé að kröfum um matvælaöryggi, hreinlæti, leyfi, öryggi og vinnuvernd og styðja við úttektir og þjálfun.
· Viðburðir og uppbygging: Styðja við móttöku hópa, einkaviðburði og séropnanir og leggja til rekstrarþekkingu við þróun nýrrar starfsemi.
· Upplýsingagjöf og eftirfylgni: Veita skýra yfirsýn yfir sölu, framlegð, kostnað, birgðir og endurgjöf gesta, upplýsa tímanlega um áhættu og fylgja aðgerðum eftir.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Viðeigandi stjórnunarreynsla úr veitinga-, hótel-, ferðaþjónustu- eða verslunarrekstri, eða öðru þjónustuumhverfi þar sem gerðar eru miklar gæðakröfur.
· Reynsla af því að leiða teymi í beinum samskiptum við gesti og styðja við frammistöðu, þjálfun og starfsþróun.
· Góð samskiptafærni og gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
· Færni í notkun vaktaáætlunar-, sölu- og birgðakerfa ásamt helstu verkfærum Microsoft 365.
Enska
Íslenska


