

Rafvirki í götuljósa- og hleðsluteymi
Viltu lýsa upp tilveruna?
Orka náttúrunnar er á spennandi tímamótum og mörg verkefni í leiðslunum. Götuljósa- og hleðsluteymið okkar gegnir mikilvægu hlutverki þegar kemur að viðhaldi götuljósa, rekstri og LED-væðingu þeirra að ógleymdri þjónustu vegna hleðslustöðva fyrir rafbílanotendur.
Við leitum að drífandi félaga til að slást í hópinn, þar sem áhersla er á sterka öryggisvitund, góð samskipti og öfluga umbótahugsun. Hjá okkur ríkir samstaða um fjölskylduvænan vinnutíma þ.e. frá klukkan 8:20-16:15 og til klukkan 15:10 á föstudögum.
Ef þú ert jákvæð(-ur) og lipur í samskiptum, býrð yfir metnaði og frumkvæði, átt auðvelt með að vinna sjálfstætt og ert með sveinspróf í rafvirkjun þá viljum við heyra í þér. Ert þú ON?
Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2021. Við hvetjum konur sérstaklega til að sækja um.*
Nánari upplýsingar veitir Jón Arnar Jónsson, verkstjóri götuljósa og hleðslustöðva – [email protected]
Af hverju Orka náttúrunnar?
https://www.on.is/af-hverju-on/
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna auk þess að framleiða heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. Við rekum virkjanir á Hellisheiði, Nesjavöllum og við Andakílsá.
Við erum leiðandi í umhverfisvænum orkuskiptum á Íslandi, nýtingu auðlindastrauma og höfum sett okkur metnaðarfull loftslagsmarkmið. Við nýtum auðlindir Íslands af ábyrgð og nærgætni með það að leiðarljósi að bæta lífsgæði núna og í framtíðinni.
Hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild, uppbyggilegum skoðanaskiptum og virðingu í samskiptum. Við bjóðum upp á fyrsta flokks aðbúnað og fjölskylduvænan vinnutíma.
*Þar sem konur eru í miklum minnihluta starfsfólks hjá virkjunum ON hvetjum við þær sérstaklega, á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, til að sækja um.











