Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Rafvirki á rafmagnsverkstæði ON

Við leitum að liðsauka í teymið okkar á rafmagnsverkstæði ON sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í rekstri, eftirliti og viðhaldi búnaðar á virkjanasvæðum okkar á Hellisheiði, Nesjavöllum og Andakíl.

Í virkjunum okkar framleiðum við rafmagn til allra landsmanna og heitt vatn fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Ef þú ert með ríka öryggisvitund og býrð yfir metnaði, frumkvæði og útsjónarsemi þá viljum við heyra frá þér.

Boðið er upp á akstur frá höfuðstöðvum ON í Reykjavík, Þorlákshöfn og frá Selfossi/Hveragerði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í nýframkvæmdum á virkjanasvæðum ON
  • Bilanagreiningar og ástandsskoðanir
  • Umsjón og eftirfylgni með störfum verktaka
  • Viðhaldsverkefni sem tengjast raforkuframleiðslukerfum og húskerfum virkjana
  • Lykilhlutverk við að viðhalda sterkri öryggismenningu ON
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af iðnaðarrafmagni, s.s. úr stóriðju, virkjunum eða sambærilegu er kostur
  • Reynsla af smá- og háspennu er sömuleiðis kostur
  • Rík öryggisvitund er skilyrði
  • Frumkvæði, lausnarmiðuð hugsun og jákvæðni
  • Sveinspróf í rafvirkjun er skilyrði

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá.

Auglýsing birt22. ágúst 2025
Umsóknarfrestur7. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Hellisheiðarvirkjun
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.RafeindavirkjunPathCreated with Sketch.RafveituvirkjunPathCreated with Sketch.RafvélavirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar