Eimskip
Eimskip
Eimskip

Ráðgjafi við söludeild flutningalausna

Eimskip leitar að öflugum starfsmanni í söludeild flutningalausna. Um er að ræða framtíðarstarf við þjónustu og samskipti við viðskiptavini.

Starfið er fjölbreytt og viðkomandi þarf að vera þjónustulipur og drífandi og geta unnið að mörgum verkefnum í einu.

Starfs- ábyrgðarsvið:

  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Samskipti við erlendar skrifstofur
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Bakvinnsla gagna
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Þekking og/eða reynsla af verkefnum tengdum flutningum er kostur
  • Að geta haft marga bolta á lofti í einu og unnið undir álagi

Nánari upplýsingar um starfið gefur Kristinn Kjærnested, forstöðumaður söludeildar flutningalausna, [email protected].

Eingöngu er tekið við umsóknum hér í gegnum ráðningarvefinn.

Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2025.

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Fríðindi í starfi
Öflugt Starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira

Auglýsing birt23. júlí 2025
Umsóknarfrestur8. ágúst 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar