Eimskip
Eimskip
Eimskip

Framtíðarstörf í vöruhúsaþjónustu í Dreifingarmiðstöð og á Vöruhóteli

Eimskip leitar að þjónustulipru og drífandi starfsfólki í vöruhúsaþjónustu félagsins í Reykjavík. Um er að ræða framtíðarstörf í dagvinnu alla virka daga.

Hjá Eimskip starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip og nýtur starfsfólk okkar góðs af stöðugri fræðslu og stuðningi, sem tryggir að öll séu vel undirbúin til að takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vörumóttaka og vöruafgreiðsla
  • Losun og lestun flutningabíla
  • Bóka vörur í birgðakerfi
  • Samskipti og upplýsingamiðlun vegna vörusendinga
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsreynsla á sviði vöruhúsaþjónustu er kostur
  • Lyftararéttindi (J) er kostur
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku og/eða ensku
  • Góð þjónustulund, heiðarleiki og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði, stundvísi og góð framkoma 
Fríðindi í starfi
  • Gott mötuneyti, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi. 
  • Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land
  • Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira. 
Auglýsing birt24. júlí 2025
Umsóknarfrestur10. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar