Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson ehf.
Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson ehf.
Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson ehf.

Sölustarf í Gömlu Bókabúðinni.

Gamla Bókabúðin í Reykjavík er að leita að framúrskarandi sölumönnum, -konum og -kvárum í fullt framtíðar starf í verslunum okkar í Reykjavík.

Sértu með bókavit, fallega rithönd og fágaðan smekk fyrir hágæða hönnun erum við með drauma starfið fyrir þig.

Hafir þú metnað fyrir öflugu sölustarfi og gaman að miklum mannlegum samskiptum, ert þú drauma starfsmaðurinn okkar.

Gamla Bókabúðin er fjölskylduverslun í fjórar kynslóðir frá árinu 1914. - Við sérhæfum okkur í íslenskum bókmenntum á öllum tungumálum, erum með besta blekpenna og blek úrval landsins og sérhæfum okkur í innflutningi og sölu á hágæða vörum frá gömlum alþjóðlegum framleiðendum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn sölu- og verslunarstörf.

Auglýsing birt24. júlí 2025
Umsóknarfrestur10. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarstræti 18, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar