Hagar
Hagar hf. er leiðandi verslunarfyrirtæki sem starfar á íslenskum dagvöru- og eldsneytismarkaði. Hagar starfrækja samtals 38 matvöruverslanir undir vörumerkjum Bónus og Hagkaups og netverslun Eldum rétt, 25 Olís þjónustustöðvar, 42 ÓB stöðvar, umfangsmikla vöruhúsastarfsemi, birgðaverslun auk verslunar með sérvöru. Hjá Högum og dótturfélögum starfa um 2.600 manns sem hafa það að markmiði að stuðla að bættum lífskjörum viðskiptavina í gegnum framúrskarandi verslun.
Hjá Högum starfar sterk liðsheild, þar sem mikið er lagt upp úr góðum starfsanda og sjálfstæðum vinnubrögðum. Við leggjum áherslu á lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi, sveigjanleika í starfi og starfsþróun með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.
Ráðgjafi í viðskiptakerfum
Vilt þú taka þátt í stafrænni vegferð Haga og dótturfélaga og móta þannig verslunarupplifun framtíðarinnar með okkur? Við leitum að öflugum og metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingum til þess að verða hluti af stækkandi þróunarteymi Haga.
Viðkomandi munu taka þátt í spennandi nýþróun og daglegum rekstri hugbúnaðar á kjarnasviði Haga og dótturfélaga, auk þess að fá tækifæri til að móta menningu og vinnubrögð teymisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina þarfir notenda og finna bestu lausnir innan BC til að mæta þeim
- Hanna og innleiða breytingar til að uppfylla kröfur notenda
- Veita faglega ráðgjöf og leiðbeina og styðja notendur
- Fylgjast með og stýra uppfærslum ásamt samþættingum við önnur kerfi
- Þátttaka í uppbyggingu ERP teymis og mótun vinnubragða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af góðum vinnubrögðum í hugbúnaðarþróun
- Þekking á Microsoft Dynamics 365 Business Central eða sambærilegum ERP kerfum
- Þekking á ERP lausnum LS Retail og Wise er kostur
Auglýsing stofnuð21. júní 2024
Umsóknarfrestur2. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Holtagarðar, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Samfélagsmiðlastjóri
Inga Elín Design ehf.
Verkefnastjóri á sviði kennslu, skipulags og skráningar í sjúkraskrá
Landspítali
Verkefnastjóri á sviði fræðslumála
Landspítali
Kennari í upplýsingatækni í 50 - 100% starf - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum
FSRE
Grafískur hönnuður
Maurar - Hönnunarstúdíó
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Síminn
Netverslun hlutastarf
IMPERIAL Akureyri
Digital Marketing & Sales Specialist
PLAIO
Scrum Master
Hagar
Hugbúnaðarsérfræðingar – vef- og applausnir
Hagar
Sérfræðingur á rekstrarvakt
Reiknistofa bankanna