Klettabær
Klettabær
Klettabær

Ráðgjafi hjá Klettabæ

Vegna aukinna umsvifa leitar Klettabær að ráðgjöfum í bæði fullt starf og hlutastarf.

Klettabær leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingum með jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileika til að sinna starfi ráðgjafa þar sem unnið er á vöktum.

Ráðgjafi er virkur í faglegri vinnu og daglegum störfum undir leiðsögn yfirmanna. Ráðgjafar vinna bæði sjálfstætt og í teymi og eru sveigjanlegir í að geta tileinkað sér þá nálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir hverju sinni. Starfið krefst góðrar samvinnu og samstarfs við stjórnendur og alla þá sem koma að málum þjónustunotenda.

Klettabær starfrækir sértæk heimili til langs og skamms tíma, býður upp á fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu og brennur fyrir velferð og hagsmuni barna og ungmenna með margþættar þarfir.

Megin markhópur Klettabæjar eru börn og ungmenni með margþættar þarfir sem þurfa sértæka og/eða einstaklingsmiðaða nálgun og þjónustu. Unnið er eftir hugmyndafræðinni áfalla- og tengslamiðaður stuðningur. Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu.

Starfsánægja, góð starfsaðlögun, markviss þjálfun og fræðsla eru í forgrunni hjá Klettabæ.

Einkennisorð Klettabæjar eru ástríða, fagmennska, gleði og umhyggja.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af umönnunar- og eða uppeldisstörfum
Afburða færni í mannlegum samskiptum
Færni í teymisvinnu
Frumkvæði, faglegur metnaður og nákvæmni í starfi
Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðun
Hæfni til að starfa eftir öryggisverkferlum
Færni í íslensku í rituðu og mæltu máli
Almenn tölvukunátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning í daglegu lífi.
Er fyrirmynd allra þjónustunotenda.
Ber ábyrgð á heimilishaldi á sinni vakt og að fylgjast með að húsnæði, húsbúnaður og ökutæki séu í lagi.
Tileinkar sér allar þær verklagsreglur sem gilda á hverri starfsstöð.
Starfar í samræmi við hugmyndafræði Klettabæjar og að fylgja markmiðum og áherslum í einstaklingsáætlunum hvers þjónustunotanda.
Vinnur í samræmi við gildandi lög og samþykkta sáttmála sem ná utan um þjónustunotendur Klettabæjar.
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt7. júní 2023
Umsóknarfrestur21. júní 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar