NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf

Ég er 37 ára stelpa sem bý í 104 Reykjavík með kærasta mínum, 16 mánaða dóttur okkar og 16 ára stjúpsyni mínum. Einnig eru tveir kettir á heimilinu.

Ég er hjólastóla notandi en ég fæddist með CP hreyfihömlun.

Ég elska að ferðast, er mikið fyrir að vera úti að gera og græja. Elska að fara à tónleika og íþróttaleiki. Er mikill félagsvera og stemmingskona sem elska góðan mat.

Ég óska eftir kvenkyns aðstoðarfólki 25 ára og eldra í NPA teymið mitt sem finnst gaman að vera á ferðinni og gera allskonar.

Um starfið:

Starfið felur í sér aðstoð við daglegt líf m.a. við heimilisstörf.
Starfið felur einnig í sér að vera framlenging á mér í hverju sem ég vil taka mér fyrir hendur frá degi til dags í lífi, leik og starfi.

Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að umgangast börn, vera barngóð og viti að hlutverk aðstoðarfólks felst einnig í því að sinna þeim þörfum barna sem foreldrar sinna frá degi til dags, t.d. að sækja í / skutla í leikskóla, fara með þeim út að leika o.s.frv.

Vinnutími: Virkir dagar frá kl 8:15-18:00. Einnig möguleika á kvöldvöktum og vöktum um helgar.

Ég er að leita að aðstoðarfólki í hlutastarf og hefst starfið í lok janúar.

Hæfniskröfur:

Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun, en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum.

Kostur ef umsækjandi hefur áhuga á matargerð, kunnáttu eða áhuga á samfélagsmiðlum og vefsíðugerð.

Reykleysi, íslensku kunnátta, bílpróf og hreint sakavottorð eru skilyrði.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.

Hægt er að lesa um hugmyndafræðina hér: npa.is

Auglýsing birt6. janúar 2026
Umsóknarfrestur21. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjavík, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar