Grund hjúkrunarheimili
Grund hjúkrunarheimili
Grund hjúkrunarheimili

Grund - Aðstoðarmaður iðjuþjálfa

Grund hjúkrunarheimili leitar að duglegum og hressum einstaklingi í starf aðstoðarmanns í iðjuþjálfun og félagsstarfi í sumar.

Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og mikil áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Um er að ræða dagvinnu og starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Starfið er tilvalið fyrir nema í iðjuþjálfun, tómstundafræði og félagsvísindum.

Hæfniskröfur:

  • Góð íslenskukunnátta
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni

Fríðindi í starfi:

  • Aðgangur að heilsustyrk
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Öflugt starfsmannafélag

Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttafélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. Á Grundarheimilunum er starfað eftir Eden hugmyndafræðinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Fanney Björg Karlsdóttir yfiriðjuþjálfi, [email protected] og Mannauðsdeild Grundarheimilanna, [email protected]

Við hlökkum til að heyra frá þér!

Auglýsing birt6. janúar 2026
Umsóknarfrestur18. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut 50, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar