

Viðskiptastjóri – Heilbrigðissvið RV
Taktu næsta skref í starfi sem skiptir máli
Rekstrarvörur leita að öflugum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi, til að leiða áfram sölu og ráðgjöf á heilbrigðisvörum fyrir skurðstofur.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir einstakling sem vill leggja sitt af mörkum til aukins árangurs, öryggis og skilvirkni á skurðstofum og heilbrigðisstofnunum um allt land.
Viðkomandi verður hluti af faglegu og öflugu teymi Heilbrigðissviðs Rekstrarvara – teymis sem þjónustar sjúkrahús, heilsugæslur og aðrar heilbrigðisstofnanir með hágæða lausnum sem stuðla að einfaldari vinnuferlum og sjálfbærni í rekstri.
· Sala og ráðgjöf á lækningatækjum og hjúkrunarvörum fyrir skurðstofur
· Byggja upp, þróa og viðhalda traustum tengslum við lykilviðskiptavini
· Skipuleggja og taka þátt í kynningum, þjálfun og fræðsludögum hjá heilbrigðisstofnunum.
· Myndun viðskiptatengsla og heimsóknir til viðskiptavina og birgja
· Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
· Þátttaka í verðfyrirspurnum og útboðum
· Fundir og ráðstefnur innanlands og erlendis
· Tryggja góða þjónustu, eftirfylgni og uppfærða innsýn í þarfir viðskiptavina.
Starfið krefst bæði sjálfstæðis og góðrar teymisvinnu og felur í sér reglulegar heimsóknir til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
· Menntun á sviði heilbrigðisvísinda eða önnur menntun sem nýtist í starfi
· Þekkingu á vörum, ferlum eða vinnuumhverfi skurðstofa.
· Sterka skipulagshæfni, sjálfstæði og metnað til að ná árangri.
· Góða samskiptahæfni og trausta þjónustulund.
· Góð tök á íslensku, ensku og almennri tölvukunnáttu.
Við bjóðum:
· Faglegt, kraftmikið og hlýlegt vinnuumhverfi.
· Þjálfun og öflugan stuðning frá teyminu okkar.
· Sveigjanlegan vinnutíma.
· Samkeppnishæf laun og kjör.
Rekstrarvörur ehf. er eitt elsta og traustasta þjónustu- og dreifingarfyrirtæki landsins á sviði hreinlætis-, hjúkrunar- og rekstrarvara. RV þjónustar sjúkrahús, stofnanir og fyrirtæki um allt land og byggir starfsemi sína á þekkingu, úrvali og framúrskarandi þjónustu.
Heilbrigðissvið RV þjónar heilbrigðisstofnunum með þekktum vörumerkjum, fræðslu og faglegri ráðgjöf.
Fyrirspurnum má beina til Ásdísar Heimisdóttur – Sviðsstjóra Heilbrigðissviðs RV - [email protected]
Umsóknir berist í gegn um Alfreð
Íslenska
Enska










