Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands

Öryggis- og umsjónaraðili á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugv

Landhelgisgæsla Íslands leitar að traustum og áreiðanlegum einstaklingi til að sinna verkefnum á sviði öryggismála og húsvörslu sem og stuðningi við erlendan liðsafla á varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Um er að ræða vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn umsjón, húsvarsla, þjónusta og eftirlit með mannvirkjum og flugskýlum á öryggissvæðunum
  • Stuðningur við öryggis- og svæðisgæslu
  • Móttaka og þjónusta við erlendan liðsafla
  • Minniháttar neyðarviðgerðir og viðhaldstilkynningar
  • Rekstur og eftirlit þvottastöðvar fyrir flugvélar
  • Snjóhreinsun
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmenn

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og menntun sem nýtist í starfi, s.s. iðnmenntun
  • Reynsla og þekking á eldvörnum
  • Reynsla af framkvæmd öryggismála
  • Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Aukin ökuréttindi/vinnuvélapróf
  • Reglusemi, nákvæmni og snyrtimennska
  • Góð enskukunnátta
  • Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Um Landhelgisgæslu Íslands:

Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.

Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 230 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska. Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt7. apríl 2025
Umsóknarfrestur24. apríl 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar