

Öryggisvörður í sérverkefni á Akureyri
Vilt þú starfa við að auka öryggi viðskiptavina okkar?
Securitas á Akureyri leitar að kraftmiklum og jákvæðum einstaklingum í spennandi verkefni í staðbundinni gæslu. Í boði eru fjölbreytt verkefni í samstilltum hópi sem veitir viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Starfið felur í sér aðgangstýringu, móttaka boða og myndavélaeftirlit.
Ef þú...
- Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
- Býrð yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu
- Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni
...þá gætum við verið að leita af þér!
Um er að ræða fullt starf sem unnið er á vaktakerfinu 5-5-4 , ýmist dag- eða næturvöktum.
Við hvetjum öll kyn sem orðin eru 23 ára og eldri og eru með hreint sakavottorð til þess að kynna sér starfið nánar og sækja um. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl næstkomandi. Nánar upplýsingar um starfið veitir Jónas Björnsson, útibússtjóri útibúsins á Akureyri í síma 580-7000.













