Húðlæknastöðin
Húðlæknastöðin er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður. Á Húðlæknastöðinni starfa auk lækna bæði ritarar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað sérhæft starfsfólk. Starfsemi stöðvarinnar er tvískipt og nær utan um sjúkdómameðferðir annars vegar og lýtahúðlækningar hins vegar.
Húðlæknastöðin leggur áherslu á að vera góður og skemmtilegur vinnustaður.
Móttökuritari - spennandi tækifæri á vinnustað í örum vexti
Húðlæknastöðin er leiðandi á sviði húðlækninga og húðmeðferða og hefur vaxið hratt á síðustu árum. Við leitum nú að skipulögðum og þjónustulunduðum móttökuritara til að bætast í ört stækkandi teymi okkar.
Starfið er fjölbreytt og líflegt, þar sem mikil áhersla er lögð á fagmennsku, sjálfstæð vinnubrögð og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar.
Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn frá 9-17
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við bjóðum uppá fjölbreytt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskár.
Fyrir frekari upplýsingar um starfið má senda póst á [email protected]
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka viðskiptavina og almenn afgreiðsla
- Símsvörun og samskipti við viðskiptavini
- Tímabókanir og skráning í kerfi
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina um vörur og þjónustu Húðlæknastöðvarinnar
- Samskipti við lækna og annað fagfólk
- Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og góð færni í samskiptum
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Framúrskarandi íslenskukunnátta nauðsynleg
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur en ekki skilyrði
Auglýsing birt31. janúar 2025
Umsóknarfrestur7. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Staðsetning
Smáratorg 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Innkaupafulltrúi
BEWI Iceland ehf
Sumarstörf á höfuðborgarsvæðinu
Arion banki
Útskriftarprógramm Arion
Arion banki
Hlutastarf í móttöku og símsvörun
Lækning
Viðskiptastjóri
Torcargo
Fulltrúi á skrifstofu Sláturfélags Suðurlands, 50-100% starf
SS - Sláturfélag Suðurlands
Skrifstofustjóri öldrunarmála
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Störf í tímavinnu í neyðarskýli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður í móttöku Brjóstamiðstöðvar
Landspítali
Launasérfræðingur
Intellecta
Kynningarstjóri – BHM
BHM
Sumarstarf námsmanns í félagsþjónustu Múlaþings Egilsstöðum
Fjölskyldusvið