
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Mannauðsráðgjafi velferðarsviðs
Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir mannauðsráðgjafa.
Kópavogsbær leitar að metnaðarfullum og reynslumiklum mannauðsráðgjafa. Mannauðsráðgjafi starfar á velferðarsviði en situr einnig í teymi mannauðsráðgjafa á miðlægri mannauðsdeild. Velferðarsvið skiptist í fjórar fagdeildir; þjónustudeild aldraðra, þjónustudeild fatlaðra, ráðgjafar- og íbúðadeild og barnavernd auk rekstrardeildar. Stöðugildi á velferðarsviði eru um 200 á 15 starfseiningum. Mannauðsráðgjafi heyrir undir sviðsstjóra en mun hafa náið samstarf við mannauðsdeild á stjórnsýslusviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála.
Að lágmarki þriggja ára reynsla af ráðgjöf í mannauðsmálum, s.s. ráðningum, fræðslumálum, uppbyggingu liðsheildar, starfsþróun og samskiptamálum.
Reynsla af þátttöku við innleiðingu mannauðstengdra verkefna.
Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, skipulagshæfileikar og lausnamiðuð hugsun við lausn verkefna.
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður.
Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur á sviði mannauðsmála allt frá ráðningum til starfsloka.
Framkvæmd mannauðsmála og stuðningur við stjórnendur, m.a. á sviði ráðninga, starfsþróunar, þjálfunar og fræðslu og samskipta.
Þátttaka í undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu starfsánægjukannana og umbótaverkefnum.
Skýrslugerð um ýmsa mælikvarða er varða mannauðsmál.
Annast um persónuverndarmál sviðsins í samvinnu við persónuverndarfulltrúa bæjarins.
Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu mannauðstengdra verkefna í samvinnu við mannauðsdeild.
Þátttaka í innleiðingu breytinga á starfsemi sviðsins og eftirfylgni.
Auglýsing birt19. febrúar 2021
Umsóknarfrestur15. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 6, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Fjölmiðlanefnd

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV ehf

Teymisstjóri stjórnsýslu og gæðamála hjá Barnavernd Reykjavíkur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

HR Manager / People Partner – Global Business Functions
Alvotech hf

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Sérfræðingur í málefnum félagslegrar samræðu aðila vinnumarkaðarins og mannsæmandi starfa: Sect
EFTA Secretariat

Yngri byggingarverkfræðingur eða byggingartæknifræðingur
JTV ehf

Verkefnastjóri á verkefnastofu
Landspítali

Sérfræðingur í neyðarvörnum
Rauði krossinn á Íslandi

Greinandi - Eignarhaldssvið
Alfa Framtak

Þjónustustjóri á Göngudeild smitsjúkdóma
Landspítali