

Málastjóri í Laufeyjarteymi
Málastjóri óskast til starfa í Laufeyjarteymi Landspítala. Starfið býður upp á mörg spennandi tækifæri til starfsþróunar. Staðan er laus frá 1. júlí 2026 og er starfshlutfall 80-100%. Eingöngu er um dagvinnu að ræða.
Laufeyjarteymi þjónustar einstaklinga sem lifa með langvarandi samslætti geðsjúkdóma og fíknar, á því stigi að hvort um sig er alvarlegt og óstöðugt í eðli sínu og fyrri og vægari meðferðarnálganir hafa ekki skilað árangri eða bættum lífsgæðum. Teymið þjónustar einstaklinga í þeirra nærumhverfi, á vettvangi.
Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og á einstaklingsbundnum þörfum, sinna meðferð og eftirfylgd, þróa meðferðaráætlanir og vöktun á árangri þjónustunnar. Málastjóri er talsmaður skjólstæðinga gagnvart kerfum og þjónustu í nánu notendasamráði sem byggir á góðu meðferðarsambandi. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda.
Laufeyjarteymi er hluti af ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu og mun frá hausti vera staðsett á Kleppi.
Enska
Íslenska






































