

Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa með okkur í geðhvarfateymi Landspítala á Kleppi. Teymið sinnir einstaklingum með geðhvörf og er eitt af sex teymum á göngudeild lyndisraskana.
Starfið felst meðal annars í mati og meðferð á geðrænum og líkamlegum einkennum, málastjórn, teymisvinnu og þjónustu við aðstandendur. Í teyminu er lögð áhersla á góðan starfsanda, þverfaglegt samstarf og stöðugar umbætur. Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar með markvissri þjálfun og starfsþróun þar sem boðið er upp á faglega leiðsögn. Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lyndisraskana er virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar og eflingu hjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala.
Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir. Starfið er laust frá 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Íslenska
Enska





































