

Tvær stöður Félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu Árborgar
Leitað er eftir framúrskarandi félagsráðgjafa sem er tilbúin að taka þátt í mikilvægum verkefnum hjá barnaverndarþjónustu Árborgar. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu velferðarþjónustu í ört vaxandi sveitarfélaginu Árborg þar sem búa rúmlega 13.000 íbúar.
Hjá Velferðarþjónustu Árborgar er lögð rík áhersla á snemmtækan stuðning, samþætta þjónustu og farsæld barna. Starfið byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem unnið er náið með fagfólki á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu með það að markmiði að styrkja stöðu barna og fjölskyldna í samfélaginu.
Í starfinu felst meðal annars að sinna móttöku og meðferð barnaverndartilkynninga, meta aðstæður barna og fjölskyldna og grípa til viðeigandi úrræða í samræmi við Barnaverndarlög nr. 80/2002. Starfsmaður veitir ráðgjöf og stuðning til barna og forráðamanna, vinnur náið með fjölskyldum og öðrum samstarfsaðilum og tekur þátt í gerð og eftirfylgd með áætlunum um meðferð máls í samræmi við gildandi lög og verklagsreglur. Einnig felur starfið í sér þátttöku í þverfaglegu samstarfi og þróun þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
Velferðarþjónusta Árborgar er framsækinn vinnustaður þar sem unnið er í nánu samstarfi við öflugan hóp fagfólks. Þar gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun þjónustu og vinna að mikilvægum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf.
- Móttaka barnaverndartilkynninga, skráning og mat á tilkynningum í samræmi við Barnaverndarlög nr. 80/2002.
- Könnun barnaverndartilkynninga samkvæmt viðeigandi lögum, reglum og verkferlum.
- Samskipti og samstarf við aðrar stofnanir og fagaðila við vinnslu barnaverndarmála.
- Virk þátttaka í þverfaglegri samvinnu á fjölskyldusviði Árborg.
- Þátttaka í stuðningsteymi barns í samræmi við lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
- Mat á stöðu og þörfum barna og fjölskyldna, með hagsmuni barns að leiðarljósi.
- Gerð og eftirfylgd með áætlunum um meðferð mála í samræmi við gildandi lög og verklag.
- Veita ráðgjöf og stuðning til barna og forráðamanna ásamt eftirfylgd með úrræðum.
- Starfsréttindi sem Félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands
- Reynsla á starfi barnaverndarþjónustu er skilyrði- þar á meðal vinnslu mála skv. Barnaverndarlögum nr. 80/2002
- Þekking og reynsla af starfi sem málstjóri skv. Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 er skilyrði.
- Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu
- Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði velferðarþjónustu .
- Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu.
- Framúrskarandi hæfni í íslensku.
Íslenska




