Leikskólinn Höfðaberg
Leikskólinn Höfðaberg
Leikskólinn Höfðaberg

Leikskólinn Höfðaberg óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða leikskólasérkennara

Leikskólinn Höfðaberg óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða leikskólasérkennara til starfa.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf þann 10. ágúst.

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í skemmtilegum verkefnum?

Í Höfðabergi eru 162 börn á 9 deildum. Börnin eru á aldrinum 3-5 ára.

Starfshlutfall er 100% og um framtíðarstarf er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita stuðning og leiðsögn við börn með félagslegar áskoranir með áherslu á samleik, jákvæð samskipti og þátttöku í barnahópnum
  • Sinna einstaklingsmiðaðri færniþjálfun með áherslu á almenna færni, fín- og grófhreyfinga og sjálfsbjörg
  • Veita ráðgjöf og stuðning við deildarstjóra og annað starfsfólk varðandi skipulag og útfærslu á námi og umönnun barna með sérþarfir
  • Taka þátt í gerð einstaklingsnámskráa, áætlana og aðlögun námsefnis í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra
  • Sýna virka þátttöku í stoðþjónustuteymi leikskólans og samstarfi við foreldra og sérfræðinga
  • Vinna að almennu uppeldi og menntun barna samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfamenntun, sérkennararmenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og jákvætt viðmót í starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Sundkort í sundlaugar Mosfellsbæjar
  • Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur2. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Æðarhöfði 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar