

Sérkennari
Grunnskólinn í Stykkishólmi óskar eftir kennara í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2026 sem hefur áhuga á að taka þátt í metnaðarfullu og fjölbreyttu skólastarfi og vinna að áframhaldandi þróun verkefna innan stoðþjónustuteymis skólans.
Við skólann eru um 190 nemendur í 1.-10. bekk og þar starfa um 50 starfsmenn í öflugu lærdómssamfélagi þar sem lögð er áhersla á samstarf, vellíðan og faglega þróun.
Í skólanum er teymiskennsla, fjölbreyttir kennsluhættir og markviss vinna samkvæmt hugmyndafræði leiðsagnarnáms, þar sem áhersla er lögð áþátttöku nemenda, skýr námsmakrið og jákvæða endurgjöf með það að markmiði að allir nemendur fái tækifæri til að ná árangri og vaxa í námi og félagsfærni.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, skapandi skólastarf og öflugt samstarf heimila og skóla.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
Umsókninni skal fylgja leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfred.is
Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri grunn- og tónlistarskóla.
[email protected] / 433-8178
Ragnar Ingi Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri
[email protected]/433-8177
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Skólinn áskilur sér rétt til að framlengja umsóknarfrest
Umsóknarfrestur er til 02. júní 2026
-
Sérkennsla nemenda í samvinnu við umsjónarkennara og deildarstjóra stoðþjónustu
-
Gerð einstaklingsnámskráa og eftirfylgni við þær
-
Þjálfun félagsfærni og sjálfstæðra vinnubragða nemenda
-
Gerð sjónræns skipulags fyrir daglegt skólastarf
-
Ráðgjöf við kennara og foreldra um nám og kennslu
-
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
-
Vinna samkvæmt stefnu skólans
-
Starfa í stoðþjónustuteymi skólans og taka þátt í að móta það
-
Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótun á skólastarfi
-
Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
-
Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
-
Menntun í sérkennslufræðum er kostur
-
Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir æskileg
-
Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu
-
Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþættingu
-
Áhugi á að vinna í góðu teymi
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
-
Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
-
Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
-
Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Íslenska










