Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær

List- og verkgreinakennari, með áherslu á sjónlistir

Grunnskólinn í Stykkishólmi óskar eftir list- og verkgreinakennara, með áherslu á sjónlistir í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2026. Leitað er metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.

Við skólann eru um 190 nemendur í 1.-10. bekk og þar starfa um 50 starfsmenn í öflugu lærdómssamfélagi þar sem lögð er áhersla á samstarf, vellíðan og faglega þróun.
Í skólanum er teymiskennsla, fjölbreyttir kennsluhættir og markviss vinna samkvæmt hugmyndafræði leiðsagnarnáms, þar sem áhersla er lögð áþátttöku nemenda, skýr námsmakrið og jákvæða endurgjöf með það að markmiði að allir nemendur fái tækifæri til að ná árangri og vaxa í námi og félagsfærni.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, skapandi skólastarf og öflugt samstarf heimila og skóla.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
Umsókninni skal fylgja leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfred.is

Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri grunn- og tónlistarskóla.
[email protected] / 433-8178
Ragnar Ingi Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri
[email protected]/433-8177

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Skólinn áskilur sér rétt til að framlengja umsóknarfrest

Umsóknarfrestur er til 02. júní 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í list- og verkgreinum
  • Samkennsla á yngsta stigi
  • Samkennsla á miðstigi
  • Samkennsla á unglingastigi
  • Teymisvinna
  • Ber ábyrgð á námi og velferð nemendahópa
  • Vinnur samkvæmt skólastefnu 
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu æskileg
  • Reynsla af teymiskennslu kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
  • Góð þekking á upplýsingatækni mikilvæg
  • Reynsla í starfi grunnskóla og/eða starfi með börnum æskileg

Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfan starfsmann.

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur2. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgarbraut 6, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar