Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær

Umsjónarkennari á miðstigi

Grunnskólinn í Stykkishólmi óskar eftir kennara í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2026 sem hefur áhuga á að taka þátt í metnaðarfullu og fjölbreyttu skólastarfi og vinna að áframhaldandi þróun verkefna innan stoðþjónustuteymis skólans.

Við skólann eru um 190 nemendur í 1.-10. bekk og þar starfa um 50 starfsmenn í öflugu lærdómssamfélagi þar sem lögð er áhersla á samstarf, vellíðan og faglega þróun.
Í skólanum er teymiskennsla, fjölbreyttir kennsluhættir og markviss vinna samkvæmt hugmyndafræði leiðsagnarnáms, þar sem áhersla er lögð áþátttöku nemenda, skýr námsmakrið og jákvæða endurgjöf með það að markmiði að allir nemendur fái tækifæri til að ná árangri og vaxa í námi og félagsfærni.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, skapandi skólastarf og öflugt samstarf heimila og skóla.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
Umsókninni skal fylgja leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfred.is

Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri grunn- og tónlistarskóla.
[email protected] / 433-8178
Ragnar Ingi Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri
[email protected]/433-8177

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Skólinn áskilur sér rétt til að framlengja umsóknarfrest

Umsóknarfrestur er til 02. júní 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
  • Fylgist með velferð nemenda, hluir að þeim andlega og kíkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu af mið-eða unglingastigi æskileg
  • Reynsla af teymiskennslu kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv evrópsa tungumálarammanum
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
  • Góð þekking á upplýsingatækni mikilvæg
  • Reynsla í starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg

Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfan starfsmann

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur2. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgarbraut 6, Stykkishólmur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar