Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Smáralind - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslu í lyfjaverslun okkar, Lyfju Smáralind. Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu, velferð viðskiptavina og að tryggja góða þjónustuupplifun. Við bjóðum samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afgreiðsla lausasölulyfja

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Reynslu af verslunarstörfum

Starfið:

Um er að ræða 80-100% starfshlutfall og vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar:

  • Virkir dagar 11:00-19:00
  • Laugardagar 11:00-18:00
  • Sunnudagar 12:00-17:00

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Björgvinsdóttir, lyfsali Lyfju Smáralind í síma 530-5800 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt26. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar