

Lyfja Sauðárkróki - Umsjónarmaður verslunar
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf umsjónarmanns í lyfjaverslun okkar á Sauðárkróki. Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Starfið heyrir undir lyfsala. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Hlutverk og ábyrgð:
- Yfirumsjón með verslun
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
- þjónusta og almenn afgreiðslustörf
Við leitum af einstaklingi sem hefur:
- Ríka þjónustulund og jákvætt og gott viðmót
- Skipulagshæfileika og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Góða almenna tölvukunnáttu
- Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
Starfið:
Vinnutími er frá 10:00-18:00 alla virka daga og laugardaga frá 11:00-13:00 eða eftir samkomulagi.
Umsækjandi þarf að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðþjófur Sigurðsson, lyfsali Lyfju Sauðárkróki í síma 453-5700 og á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska










