Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Lágmúla - Lyfjatæknir

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum lyfjatækni eða lyfjatækninema með ríka þjónustulund í Lyfju Lágmúla. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum, afhendingu lyfja gegn lyfseðli og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Móttaka lyfseðla og lyfjatiltekt
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum og notkun þeirra
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Frágangur lyfja

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Reynsla af störfum í apóteki er nauðsynleg
  • Gilt starfsleyfi sem lyfjatæknir er kostur
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Góð almenn tölvukunnátta

Vinnutími:

Um er að ræða fullt starf og unnið er á dagvöktum, kvöldvöktum og um helgar samkvæmt vaktaplani.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í desember.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 20 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla í síma 533-2300 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt13. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar