Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Egilsstöðum - þjónusta og ráðgjöf

Vilt þú hafa áhrif á heilsu, vellíðan og aukin lífsgæði viðskiptavina?

Lyfja Egilsstöðum leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í afgreiðslu og sölu. Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðgjöf til viðskiptavina um val og notkun á lausasölulyfjum og öðrum vörum.

Hlutverk og ábyrgð

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið

Um er að ræða hlutastarf og vinnutími samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar:

  • Virkir dagar 10:00-18:00
  • Laugardagar 10:00-14:00

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Egilsstöðum í síma 471-1273 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt19. september 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kaupvangur 6, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar