Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Lindaskóli óskar eftir enskukennara á unglingastig

Lindaskóli er skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem lögð er áhersla á metnað í námi, vellíðan nemenda og gott samstarf starfsfólks. Við vinnum í teymum og leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun. Skólinn státar einnig af öflugri skemmtinefnd sem stuðlar að góðum starfsanda.

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 470 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og er Réttindaskóli UNICEF. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.

Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.

Lindaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan enskukennara til starfa frá og með næsta skólaári.

Frekari upplýsingar

Við bjóðum upp á jákvætt starfsumhverfi, öflugt faglegt samstarf og góðan starfsanda.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um og verða hluti af öflugu starfi Lindaskóla.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf til kennslu fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði

Nánari upplýsingar um starfið gefur Margrét Ármann skólastjóri [email protected]

Einungis er hægt að sækja um starfið í gegnum alferd.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í ensku á unglingastigi samkvæmt aðalnámskrá.
  • Menntun sem nýtist í enskukennslu eða sambærileg sérhæfing.
  • Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd kennslu.
  • Mat á námsárangri nemenda og skráning námsmats.
  • Stuðningur við fjölbreyttan nemendahóp og aðlögun kennsluhátta að þörfum nemenda.
  • Samstarf við foreldra, samstarfsfólk og stjórnendur skólans.
  • Þátttaka í þróunarstarfi og skólasamfélaginu.
  • Að skapa jákvætt, öruggt og hvetjandi námsumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu skilyrði
  • Reynsla af enskukennslu á unglingastigi er æskileg
  • Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi er kostur
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Stundvísi og samviskusemi

 

Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar