Garðabær
Garðabær
Garðabær

Hofsstaðaskóli - umsjónakennarar

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennurum í 1. – 3. bekk. Í skólanum verða um 460 nemendur í 1. – 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár grunnskóla og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Ánægja af starfi með börnum og ungmennum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar