
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Eignasjóður Garðabæjar - verkefnastjóri
Eignasjóður leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sviði framkvæmda til að leiða fjölbreytt viðhalds- og framkvæmdaverkefni.
Eignasjóður heldur utan um allar eignir Garðabæjar. Auk þess að stýra hönnun, undirbúningi og eftirliti með viðhaldi og framkvæmdum felur starfsemin einnig í sér verkefni sem varða breytingar og endurbætur á eldra húsnæði og aðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnisstjórnun viðhalds og framkvæmda
- Gerð kostnaðar- og tímaáætlana
- Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna
- Umsjón með uppgjöri verkefna
- Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði byggingartæknifræði, byggingarfræði eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi*
- Reynsla og þekking á viðhaldi eldra húsnæðis
- Reynsla af hönnun og verklegum framkvæmdum
- Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Metnaður, skipulagsfærni, stundvísi og öguð vinnubrögð
*Til greina kemur að ráða aðila með aðra menntun sem nýtist í starfi ásamt umfangsmikilli reynslu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Fríðindi í starfi
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
- Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiMetnaðurSkipulagStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Hofsstaðaskóli - leiðbeinandi á frístundaheimili
Garðabær

Hofsstaðaskóli - umsjónakennarar
Garðabær

Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - starfsmenn í íþróttamannvirki
Garðabær

Álftanesskóli - umsjónarmaður frístundaheimilisins Álftamýri
Garðabær

Hofsstaðaskóli - stuðningsfulltrúi
Garðabær

Kirkjuból - leikskólakennari
Garðabær

Sjálandsskóli - kennari í hönnun, smíði og nýsköpun
Garðabær




