Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Aðstoðarforstöðumaður í frístund Lindaskóla

Laus er til umsóknar staða aðstoðarforstöðumanns frístundar við Lindaskóla, Kópavogi.

Lindaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling í starf aðstoðarforstöðumanns frístundaheimilisins Demantabæjar sem er staðsett inni í skólanum. Frístundin er ætluð börnum í 1. - 4. bekk.

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli með um 440 nemendur í 1. - 10. bekk og um 160 börn eru í frístundinni hvert ár. Góður starfsandi ríkir bæði í skóla og frístund og hefur mikil og góð samvinna verið milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Gildi skólans eru vinátta, virðing og viska.

Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna á aldrinum 6-9 ára með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Umsjón með daglegum störfum starfsmanna og stýrir verkaskiptinu á milli þeirra í samráði við forstöðumann frístundaheimilisins.

- Er leiðbeinandi og veitir starfsmönnum leiðsögn og/eða tilsögn í framkvæmd vinnunnar.

- Stuðlar að jákvæðum og lýðræðislegum starfsháttum meðal starfsmanna og barna á frístundaheimilinu.

- Sér um skipulagningu, undirbúning og framkvæmd starfsins í samráði við forstöðumann, samstarfsfólk og þátttakendur í starfinu.

- Sér um að viðfangsefni á frístundaheimilinu stuðli að þroska barna og séu fjölbreytt, aldursviðeigandi og höfði til barna.

- Aðstoðar við að stýra starfsmannafundum á frístundaheimilinu.

- Tekur fullan þátt í starfi með börnum og starfsfólki á starfstíma frístundaheimilisins.

Menntunar- og hæfniskröfur

- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.

- Reynsla af starfi með börnum.

- Reynsla af félags- og tómstundastarfi.

- Reynsla af samstarfi við grunnskóla og leikskóla er kostur.

- Skipulagshæfileikar og hæfni í samskiptum.

- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.

- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi á frístundaheimili.

- Almenn tölvukunnátta.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að gefa heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Upplýsingar um starfið gefa Margrét Ármann skólastjóri Lindaskóla, [email protected] og Kristín Lillý Kjærnested forstöðumaður frístundar Lindaskóla, [email protected].

Auglýsing birt7. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar