

Starf forstöðumanns Þórbergsseturs á Hala er laust til umsóknar
Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf á Þórbergssetri á Hala í Suðursveit þar sem reynir á frumkvæði, sköpun og metnað.
Forstöðumaður Þórbergsseturs hefur umsjón með daglegri starfsemi og móttöku ferðamanna. Hann starfar með stjórn og í náinni samvinnu við leigutaka veitingasölu í Þórbergssetri.
Stefnt er að öflugu menningarstarfi á forsendum staðbundinnar þekkingar og arfleifðar Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar.
Starfið er laust frá og með 1. janúar 2027. Forstöðumaður skal hafa fasta búsetu í Sveitarfélaginu Hornafirði, en húsnæði fylgir ekki starfinu. .
· Fjármál, rekstur og styrkumsóknir
· Stefnumótun og útfærsla á starfsemi
· Öll miðlun, viðburðir og sýningar stofnunarinnar
· Samningar og samstarf við innlenda og erlenda aðila
· Starfsmannamál og umsjón fasteigna
· Háskólamenntun á sviði hug- eða félagsvísinda og skyldra greina er æskileg
· Góð þekking á menningarmiðlun og hagnýt reynsla á því sviði
· Leiðtogahæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum
· Reynsla af stjórnun, rekstri og fjárhagslegri ábyrgð
· Reynsla af bæði fræðilegum og almennum textaskrifum
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
· Reynsla af þverfaglegu samstarfi er æskileg
Fastur bílastyrkur
Íslenska
Enska





