Landsnet
Landsnet
Landsnet

Forstöðumaður Lögfræði og stjórnkerfa

Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.

Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka. Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar.

Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Ef þú átt erindi og sterkan áhuga á vegferð með okkur í átt að raforkudrifinni verðmætasköpun á traustum grunni viljum við gjarnan heyra í þér!

Forstöðumaður Lögfræði og stjórnkerfa ber ábyrgð á hagsmunagæslu gagnvart laga- og reglugerðarumhverfi og stýrir teymi lögfræðinga sem og teymi á sviði gæða- og öryggismála. Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi á skrifstofu forstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og stuðningur við leiðtoga og teymi lögfræði, gæða- og stjórnkerfis og öryggismála
  • Stjórnun miðlægrar hagsmunagæslu varðandi laga- og reglugerðarumhverfi
  • Leiða greiningu starfa og hvernig þau útfæra rekstur í samræmi við gæða- og stjórnkerfi
  • Leiða markmiðasetningu og framkvæmd umbóta í stjórnkerfum og skipulagi rekstrar
  • Viðkomandi er hluti af öflugu teymi stjórnenda á skrifstofu forstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Starfsreynsla af tengdri starfsemi og raforkukerfinu er kostur
  • Færni og frumkvæði í að skapa og stýra öflugu teymi
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfileiki að tjá sig í ræðu og riti
  • Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð hugsun í stjórnun starfsfólks og verkefna
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar