
Gæðastjóri
Vilt þú hafa áhrif á gæði, verklag og þjónustu hjá stofnun sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir samfélagið þegar náttúruhamfarir verða?
Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) óskar eftir að ráða öflugan og skipulagðan gæðastjóra til að leiða og þróa gæða- og skjalamál stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf á fámennum vinnustað og er mikilvægt að viðkomandi geti unnið bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi sem tekur sameiginlegar ákvarðanir um allar breytingar og mikilvæg umbótaverkefni.
Helstu verkefni
- Umsjón með gæðastjórnunarkerfi NTÍ, þar á meðal gæðahandbók, verkferlum og gæðaskjölum.
- Uppbygging, innleiðing og viðhald skjalastjórnunar og góðrar skjalamenningar.
- Framkvæmd innri úttekta og eftirfylgni umbótaverkefna.
- Skýrslugjöf um frammistöðu gæðastjórnunarkerfis og þátttaka í áhættustýringu.
- Samskipti við tjónþola og úrvinnsla tjónamála.
- Umsjón með rafrænum erindum, skráningum og upplýsingaflæði.
- Þátttaka í þróun og prófun upplýsingakerfa.
- Stuðningur og samhæfing starfsfólks í stærri tjónsatburðum.
- Almenn skrifstofu- og þjónustuverkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Umtalsverð reynsla af uppbyggingu og rekstri gæðastjórnunarkerfa.
- Reynsla af framkvæmd innri úttekta og skýrslugerð er kostur.
- Þekking og reynsla af skjalastjórnun og opinberri skjalavörslu er kostur.
- Góð þekking á upplýsingakerfum og umbótastarfi.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Þekking á stjórnsýslu og/eða vátryggingum er kostur.
- Reynsla af viðskiptamannakerfum er kostur.
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Um Náttúruhamfarartryggingu Íslands:
Náttúruhamfaratrygging Íslands er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að vátryggja eignir gegn náttúruhamförum. Að jafnaði starfa sjö manns hjá NTÍ, en þegar stórir tjónsatburðir verða geta orðið miklar breytingar á starfsmannafjölda til skemmri tíma. Kynningarmyndband um NTÍ má finna hér.
Starfsandinn hjá NTÍ er sérlega góður og samkvæmt árlegri starfsánægjukönnun ríkir almenn ánægja á vinnustaðnum. Starfsstöðin er í Hlíðarsmára 14 í Kópavogi.
Vinnuvikan er 38 klst. með styttingu vinnuvikunnar. Almennur vinnutími er frá kl. 8 til 16 mánudaga til fimmtudaga og frá 8 til 14 á föstudögum. Léttar veitingar eru í boði í hádeginu alla daga.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Um er að ræða fullt starf og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.
Íslenska
Enska

