Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Flækjumeistari óskast

Lindaskóli er skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem lögð er áhersla á metnað í námi, vellíðan nemenda og gott samstarf starfsfólks. Við vinnum í teymum og leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun. Skólinn státar einnig af öflugri skemmtinefnd sem stuðlar að góðum starfsanda.

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 470 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og er Réttindaskóli UNICEF. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.

Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.

Lindaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan textílkennara til starfa frá og með næsta skólaári.

Ert þú góð/ur í að leysa flækjur og fær þegar snurða hleypur á þráðinn?

Við leitum að skapandi og lausnamiðuðum textílkennara.

Í starfinu felst að leiðbeina nemendum í textílmennt, efla sköpunargleði og styðja þau í að finna eigin leiðir til að leysa verkefni.

Við leggjum áherslu á jákvætt og hvetjandi námsumhverfi þar sem forvitni, þolinmæði og frumkvæði fá að njóta sín.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • er lausnamiðaður og nýtur þess að „leysa úr flækjum“
  • hefur áhuga á skapandi kennsluháttum
  • býr yfir þekkingu á textílsögu og íslensku handverki
  • hefur áhuga á sjálfbærni og endurnýtingu í textíl
  • á auðvelt með samskipti og samstarf

Við leitum að kennurum sem hafa brennandi áhuga á starfi með börnum, vilja taka þátt í öflugu skólastarfi og leggja sitt af mörkum til að efla bæði nám og líðan nemenda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast textílkennslu í skólanum
  • Samstarf list og verkefnakennara
  • Skipulagning og framkvæmd náms í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
  • Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
  • Þátttaka í þróunarstarfi og starfsmannafundum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu skilyrði
  • Reynsla af kennslu æskileg
  • Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi er kostur
  • Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Stundvísi og samviskusemi
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur24. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar