Frístundaþjónusta í Árborg
Frístundaþjónusta í Árborg

Sérfræðingur með sértæka ábyrgð á frístundaheimilinu Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi

Sveitarfélagið Árborg leitar að sérfræðingi með sértæka ábyrgð fyrir frístundaheimilið Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi. Um er að ræða 60-100% tímabundið starf með möguleika á áframhaldandi starfi.

Leitað er að reglusömum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur m.a. til að bera frumkvæði, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Frístundaheimilið er með aðstöðu inn í húsnæði Sunnulækjarskóla. Á frístundaheimilinu er boðið uppá metnaðarfullt og fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Árborg í frístundamálum síðustu misseri og mikla grósku má finna innan frístundaþjónustu Árborgar.

Um er að ræða spennandi og áhugavert starf þar sem er boðið upp á sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með börnum með fötlunargreiningar og aðrar sértækar stuðningsþarfir á frístundaheimilinu
  • Fylgja eftir málefnum barna með sérþarfir í samstarfi við foreldra, starfsfólk og aðra fagaðila
  • Sinna verkefnastýringu og eftirfylgni á tilteknum verkefnum
  • Aðstoða þroskaþjálfa frístundaheimila Árborgar eftir þörfum, meðal annars með þátttöku í teymisfundum
  • Viðhalda og þróa sérþekkingu og nýbreytni í frístundastarfi fyrir börn með sértækar stuðningsþarfir
  • Leiðbeina og handleiða stuðningsfulltrúum í starfi með börnum með sérþarfir.
  • Vinna með börnum á opnunartíma frístundaheimilisins
  • Stuðla að auknu sjálfstæði, félagsfærni og þátttöku barna í leik, starfi og daglegum athöfnum
  • Taka virkan þátt í faglegu starfi frístundaheimilisins með áherslu á velferð og öryggi barna
  • Taka þátt í teymisfundum og vinna náið með fagteymi frístundaheimila
  • Starfa í samræmi við stefnu frístundaheimila Árborgar og gildandi lögum og reglugerðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem þroskaþjálfun, tómstunda- og félagsmálafræði, kennslufræði, félagsráðgjöf eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla og áhugi á starfi með börnum
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð
  • Sjálfstæði og frumkvæði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar