Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Kennari í hönnun og smíði!

Salaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk, staðsettur á grónu svæði við Versali í Kópavogi. Skólinn var stofnaður árið 2001 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Í skólanum eru tæplega 500 nemendur og þar starfar vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk. Rík hefð er fyrir þróunarstarfi þar sem m.a. er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, teymiskennslu, jákvæðan skólabrag og gott samstarf við foreldra og nærsamfélagið. Í Salaskóla er rekin sérdeild fyrir börn með einhverfu, frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk og gott samstarf er við félagsmiðstöðina Fönix sem staðsett er í skólahúsnæðinu. Gildi Salaskóla eru vinátta, virðing og samstarf.

Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum.

Smíðakennara vantar í afleysingar, tímabundið á haustönn 2026.

Smíðakennari er hluti af teymi kennara í list-, verk- og tæknigreinum. Teymið vinnur töluvert saman að skipulagi náms og kennslu, lotutímabilum og hópaskiptingum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Ed, M.Ed eða önnur viðeigandi menntun sem hentar þessari kennslugrein, sem og leyfisbréf til kennslu. 
  • Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu. 
  • Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum nemendahópi.
  • Áreiðanleiki og stundvísi.
  • Vera tilbúin/n að vinna eftir stefnu skólans.
  • Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins. 

Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur24. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar