

Leikskólinn Naustatjörn: Starfsfólk í leikskóla
Leikskólinn Naustatjörn á Akureyri óskar eftir að ráða starfsfólk í 80% til 100% stöður. Um er að ræða afleysingastöður, þ.e. starfsfólk fer á milli deilda í sínu starfi en er ekki á sömu deild alla daga.
Stöðurnar eru ótímabundnar og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Í Naustatjörn er lögð áhersla á að nemendur fái að kljást við margvísleg verkefni í gegnum sjálfssprottinn leik og að þeir læri af eigin reynslu, virkni og áhuga.
Áhersluþættir skólans eru leikurinn og Jákvæður agi. Aðrir áhersluþættir eru náttúra og umhverfi og er skólinn handhafi Grænfánans.
Einkunnarorð skólans eru Félagsfærni – Endurnýting – Sjálfstæði – Tillitssemi – Athvarf.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn á www.naustatjorn.akureyri.is
Næsti yfirmaður starfsfólks í leikskóla er deildarstjóri.
- Vinna að uppeldi og menntun barna.
- Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Þátttaka í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildarstjóra og/eða skólastjóra.
- Þátttaka í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og/eða skólastjóra.
- Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Sitja fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
- Að eiga auðvelt með mannleg samskipti og vera tilbúin/n til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
- Sveigjanleiki í starfi og vera tilbúin/n að ganga í ýmis störf.
- Reynsla af starfi með börnum er kostur.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska

























