

Leikskólinn Tröllaborgir: Skólastjóri
Staða skólastjóra leikskólans Tröllaborga á Akureyri er laus til umsóknar. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. júní 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum skólastjóra sem er forstöðumaður leikskólans, stjórnar honum og er faglegur leiðtogi sem fylkir liði um stefnu skólans og árangursríka starfshætti. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á faglegri þróun, daglegum rekstri, mannauðsmálum og annarri starfsemi skólans og tryggir að skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir. Skólastjóri kemur á og viðheldur góðum skólabrag með tilstyrk starfsfólks skólans.
Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is
- Skólastjóri leiðir þróun skólastarfs og veitir því faglega forystu í samræmi við skólastefnu, menntastefnu og aðrar stefnur Akureyrarbæjar, aðalnámskrá leikskóla, lög og reglugerð um leikskóla og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
- Stýrir daglegri starfsemi, mannauðs- og rekstrarmálum.
- Stuðlar að framförum, árangri, velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks.
- Þróar og fylgir eftir framsækinni sýn, stefnu og skólamenningu í samstarfi við starfsfólk, nemendur og foreldra.
- Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Viðbótarmenntun á sviði menntunarfræða og/eða stjórnunar er kostur.
- Farsæl reynsla af kennslu.
- Farsæl samvinna við aðstandendur nemenda.
- Farsæl reynsla af störfum á sviði stjórnunar og/eða reksturs skóla.
- Farsæl reynsla af faglegri forystu og leiðsögn á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
- Farsæl reynsla af mannauðsmálum kostur og færni til eflingar mannauðs.
- Samstarfsvilji og framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum.
- Frumkvæði og góð leiðtogahæfni.
- Sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
- Metnaður til árangurs.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










