
Egilsstaðaskóli
Í Egilsstaðaskóla eru um 400 nemendur og um 100 starfsmenn. Grunngildi skólans eru gleði, virðing og metnaður. Áhersluþættir í faglegu starfi eru einstaklingsmiðað nám, teymiskennsla og þverfaglegt samstarf.

Kennarar óskast til starfa í Egilsstaðaskóla
Egilsstaðaskóli óskar eftir að ráða kennara til starfa frá 1. ágúst 2026
Framtíðarstörf við skólann:
- Umsjónarkennari á miðstig.
- Faggreinakennari á unglingastig, stærðfræði/náttúrugreinar.
Tímabundin störf næsta skólaár:
- Faggreinakennari á unglingastig, danska/íslenska 100% starf.
Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu og þverfaglegt samstarf. Skólinn er að innleiða hugmyndafræði Heillaspors, Uppeldis til ábyrgðar og Leiðsagnarnáms.
Ráðið er í stöðurnar frá og með 1. ágúst 2026.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri stigs.
Athugið að störfin voru upphaflega með umsóknarfrest til 14.apríl 2026 en eru auglýst hér í annað sinn með umsóknarfrest til 29. apríl nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla.
- Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn).
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagshæfni.
- Framúrskarandi íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt15. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnarlönd 11, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðKennslaSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennarar fyrir næsta skólaár
Leikskólinn Sumarhús

Laus kennarastaða á unglingastigi við Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli

Heimilisfræðikennari í Hagaskóli
Hagaskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennarar á yngra stigi frá 1. ágúst 2026
Fellaskóli

Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga

Klettaskóli - Kennari / þroskaþjálfi
Klettaskóli

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á deild yngstu barna
Núpur

Leikskólakennari óskast í leikskólann Núp
Núpur