

Forstöðumaður frístundar í Snælandsskóla
Snælandsskóli leitar að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf forstöðumanns frístundar.
Snælandsskóli er heildstæður um 470 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum. Skólinn er Grænfána skóli í samvinnu við Landvernd, styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og þá er skólinn líka Réttindaskóli Unicef.
Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.
Starfssvið og helstu verkefni
- Umsjón með skipulagi og rekstri frístundar.
- Vinna að starfsáætlun og mótun félagslegs starfs og í samráði við skólastjórnendur.
- Samvinna og samstarf við kennara, foreldra og stjórnendur.
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólanám (BEd, BA) á sviði tómstunda-, uppeldis- og/eða félagsfræða
- Reynsla skipulögðu starfi með börnum
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
- Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Viðkomandi þarf að vera lausnarmiðaður í hugsun og geta sýnt sveigjanleika í skipulagi
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.
- Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
Ráðningartími og starfshlutfall
Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026 til eins árs vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Hægt er að skoða möguleika á að ráða frá og með 1. maí 2026 og þá til 31. júlí 2027.
Aðrar upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.
Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Karen Ágústsdóttir forstöðumaður í gegnum netfangið [email protected].
Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum alfred.is.
Starfsfólk Kópavogs fær frítt í sundlaugar Kópavogs.
Íslenska










