

Leikskólakennarar óskast í Skýjaborg Hvalfjarðarsveit haustið 2026
Leikskólinn Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa frá hausti 2026.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit. Við erum í því spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/
Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla.
Vinna í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
· Leyfisbréf til kennslu*, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
· Reynsla af vinnu með börnum
· Góð samskiptahæfni
· Góð íslenskukunnátta
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
· Hæfni til að vinna í teymi
*Ef ekki fást leikskólakennarar verður horft til menntunar og reynslu. Við hvetjum því öll áhugasöm til að sækja um.
· 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
· Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.
· 6 skipulagsdagar á ári.
Íslenska










