Regnboginn
Regnboginn
Regnboginn

Leikskólakennari - Regnboginn leikskóli

Regnboginn óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% stöðu

Regnboginn er 3ja deilda, sjálfstætt starfandi leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.

Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.

Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitssemi, vináttu og kærleika.

Í Regnboganum starfar öflugur hópur starfsfólks sem er samheldinn, skemmtilegur og jákvæður. Rík áhersla er á að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu.

Í síðustu starfsmannakönnun sögðu 100% starfsmanna að þeir myndu mæla með Regnboganum sem vinnustað!

Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Guðmundsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected]

Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfi leikskólans og öðrum verkefnum undir stjórn skólastjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Ef ekki fæst leikskólakennari verður horft til háskólamenntunar sem nýtist í starfi með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Bleikjukvísl 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar