Garðabær
Garðabær
Garðabær

Flataskóli - umsjónarkennarar á miðstig

Flataskóla vantar metnaðarfulla umsjónarkennara á miðstig.

Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem velferð nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?

Við leitum að kennurum í fullt starf frá 1. ágúst 2026, um er að ræða afleysingu í eitt ár vegna námsleyfis. Öllum áhugasömum kennurum er velkomið að sækja um, óháð reynslu á ákveðnu stigi – við leggjum áherslu á hæfni og metnað.

Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Í skólanum ríkir faglegur metnaður og lögð er áhersla á uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig Réttindaskóli hjá UNICEF.

Í Flataskóla er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf starfsfólks og leiðsagnarnám sem lykilþátt í námsumhverfi nemenda.

Áherslur í starfi skólans:

  • Fámenni í nemendahópum
  • Góður stuðningur við kennara og nemendur
  • Skapandi og faglegt skólastarf
  • Leiðsagnarnám sem hluti af daglegu skólastarfi

Kennarar hafa jafnframt tækifæri til að taka aukalega frídaga með því að vinna af sér tvo daga á önn.

Sýn skólans er að efla seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipuleggja nám og kennslu nemenda
  • Kenna og hafa umsjón með nemendum
  • Stuðla að velferð nemenda og jákvæðum samskiptum við foreldra og annað fagfólk
  • Taka þátt í teymisvinnu og samstarfi innan skólans
  • Taka þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla eða starfi með börnum 
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi og þekking á leiðsagnarnámi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar