Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Sérkennari

Við Glerárskóla er laus til umsóknar 100% staða sérkennara í 6. - 10. bekk.

Starfið er tímabundið skólaárið 2026-2027 og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur sýnt árangur í störfum sínum, á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • vera hluti af stoðteymi skólans ásamt sérkennurum, iðjuþjálfa, námsráðgjafa og ÍSAT kennara
  • sinna sérkennslu nemenda sem þurfa sértæka aðstoð í námi og taka þátt í lausnaleit og vinnu hvað varðar þátttöku þeirra í daglegu skólastarfi
  • aðstoða umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa
  • veita kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn
  • útbúa kennslugögn og aflar nýrra í samræmi við þarfir einstakra nemanda
  • vera teymisstjóri í nemendamálum
  • vera þátttakandi í markvissri nýbreytni og þróunarstarfi stoðþjónustu skólans
  • starfa undir leiðsögn verkefnastjóra stoðþjónustu
  • starfa undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Kennslureynsla í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu nemenda í 6. - 10. bekk kostur
  • Framhaldsnám á sviði sérkennslu er æskileg
  • Réttindanám í LOGOS er kostur
  • Þekking á jákvæðum aga, teymisvinnu og teymisstjórnun er kostur
  • Vald á fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda, t.a.m. leiðsagnarnámi
  • Góð þekking á kennslu og uppeldisfræðum auk skólaþróunar
  • Áhugi og metnaður til að vinna með stoðþjónustuteymi skólans og fylgja sýn hans og stefnu
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, samstarfsvilji, sveigjanleiki og víðsýni í starfi
  • Góðir skipulagshæfileikar, reglusemi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar