Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Skólaliði

Í Glerárskóla er laus til umsóknar staða skólaliða.

Um er að ræða ótímabundna stöðu um 80% með vinnutíma frá 7:50-14:00.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Starf skólaliða er fjölbreytt og felur m.a. í sér gæslu og aðstoð við nemendur í starfi og leik á vegum skólans, aðstoð í mötuneyti, ræstingar og margt fleira. Skólaliðar starfa undir verkstjórn umsjónarmanns húsa og í samstarfi við alla aðra starfsmenn skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka nemenda og umsjón með þeim á og fyrir/eftir skólatíma
  • Frímínútnagæsla innan -og utanhúss
  • Almenn gæsla og eftirlit með nemendum í skóla og frístund
  • Eftirlit með húsnæði og búnaði
  • Afgreiðsla, umsjón og gæsla í matar- og kaffitímum
  • Tilsjón og aðstoð við nemendur vegna margvíslegra verkefna
  • Umsjón með kaffistofu starfsfólks og starfsmannaaðstöðu skólans
  • Ræsting samkvæmt starfsáætlun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri og leikni í samskiptum við börn og fullorðna
  • Æskilegt er að umsækjandi sé með reynslu af störfum með börnum
  • Æskilegt er að umsækjandi sé með reynslu af þrifum
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og ábyrgð
  • Samviskusemi og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
  • Ýmiskonar hæfileikar, menntun og/eða þekking sem getur auðgað skólastarfið
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar