
Barnaskóli Kársness
Við Skólagerði í Kópavogi er að rísa ný og nútímaleg skólabygging, þar sem áður stóð gamli Kársnesskóli. Nýr skóli mun taka þar til starfa haustið 2025 - Barnaskóli Kársness.
Skólinn mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Byggingin verður öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi. Í skólanum verða 60 – 80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Skólaliði í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.
Við óskum eftir jákvæðum og umburðarlyndum skólaliða í Barnaskóla Kársness. Starf skólaliða er þjónustustarf sem felur í sér ræstingu skólahúsnæðis, þvott, aðstoð og frágang í mötuneyti og matsal sem og aðstoð við nemendur í leik og starfi, til dæmis í gangavörslu og frímínútnagæslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ræsting skólahúsnæðis og þvottur
- Halda rýmum snyrtilegum og hreinum yfir daginn
- Aðstoðar nemendur innan húss og utan í samstarfi við annað starfsfólk skólans
- Aðstoð og frágangur í mötuneyti, matsal og kaffistofu skólans, aðstoð við undirbúning máltíða og gæsla í matsal
- Gangbrautarvarsla, frímínútnagæsla og fylgd með nemendum, s.s. í sund-, íþrótta- og vettvangsferðum þar sem við á
- Gengur fram með góðu fordæmi og aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Sinnir öðrum tilfallandi verkefnum sem kunna að vera falin af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af vinnu með börnum æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
- Ríkuleg þjónustulund
- Stundvísi og reglusemi
- Frumkvæði, sveigjanleiki og jákvæðni
- Góð íslenskukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Auglýsing birt9. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bílaþvottur/Carwash-Kef Airport
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Óskum eftir starfsfólki í frábæra teymið okkar á Akureyri
Bohemian Hotels ehf.

Þrif á Laugarvatni og næsta nágrenni
HS umsjón ehf.

Þrif á baðstöðum - næturvinna
Vatn og tæki ehf

Summer Housekeeper 100%
Hótel Holt

Húsbílaþrif
Geysir Motorhome

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Housekeeping
Torfhús Retreat

Standsetning nýrra og notaðra bíla
Bílaumboðið Askja

Standsetning og þrif / PDI and detailing
Porsche á Íslandi

Sundlaugarverðir óskast í sumar
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum

Aðstoðar matráður/skólaliði óskast í Brúarásskóla
Brúarásskóli