Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennarar óskast til starfa

Hafnarfjarðarbær leitar af áhugasömum og metnaðarfullum leikskólakennurum til starfa hjá leikskólum bæjarins.

Við hvetjum fólk með áhuga og reynslu af leikskólastörfum til að sækja um störfin og munum skoða þeirra umsóknir ef ekki fást leikskólakennarar í auglýstar stöður.

Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins þar sem starfa um 2000 manns og eru leikskólar hjá sveitarfélaginu 17 talsins og því er um fjölbreytt og spennandi störf að ræða í metnaðarfullu starfsumhverfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
Góð færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Góð íslenskukunnátta
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt7. september 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar