
Leikskólakennari/leiðbeinandi í Brekkuborg
Leikskólakennari eða leiðbeinandi með sambærilega menntun óskast til starfa við kennslu í leikskólann Brekkuborg sem er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi.
Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfinu. Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð.
Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar
Við erum regnbogaskóli og vinnum mikið með vináttu og virðingu.
Við erum með samskiptasáttmála Brekkuborgar.
Sjá um kennslu og sjá um umönnun leikskólabarna
Leikskólakennarmenntun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfið.
Góð færni í samskiptum.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Vera ábyrgur og áreiðanlegur.
36 stunda vinnuvika.
Íþróttastyrkur.
Samgöngustyrkur.
Frítt sund- og menningarkort.
Íslenska










